Alhliða ráðgjöf

Ráðgjafarsvið KPMG á Íslandi veitir fyrirtækjum hérlendis sem og erlendis alhliða ráðgjöf. Þjónusta ráðgjafarsviðs er byggð á alþjóðlegu þjónustuframboði KPMG og er veitt samkvæmt alþjóðlegum gæðakröfum.

Starfsmenn ráðgjafarsviðs hafa flestir áralanga reynslu, fjölbreyttan bakgrunn og sérhæfingu í þeirri þjónustu sem þeir veita viðskiptavinum. Þessi blanda gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar þjónustu í hæsta gæðaflokki á Íslandi.

Metnaðarfull og framsækin ráðgjöf

Ráðgjafarsvið KPMG á Íslandi veitir fyrirtækjum hérlendis sem og erlendis alhliða ráðgjöf. Þjónusta ráðgjafarsviðs er byggð á alþjóðlegu þjónustuframboði KPMG og er veitt samkvæmt alþjóðlegum gæðakröfum. 

Ráðgjafar KPMG styðja fyrirtæki og stofnanir við að taka betri (smarter) ákvarðanir, bæta og straumlínulaga rekstur, draga úr áhættu, auka arðsemi, skapa verðmæti og auka samkeppnishæfni.

Það er þannig markmið ráðgjafarsviðs að tryggja viðskiptavinum nauðsynlegan stuðning og innsýn til að greina og fanga hin ýmsu tækifæri, hrinda af stað verkefnum/aðgerðum (e. initiate action) og knýja áfram jákvæðar breytingar á krefjandi og dýnamískum markaði.

Á ráðgjafarsviði starfa 45 sérfræðingar sem flestir hafa áralanga reynslu, fjölbreyttan bakgrunn og sérhæfingu í þeirri þjónustu sem þeir veita viðskiptavinum. Starfsmenn ráðgjafarsviðs starfa náið með tæplega 1.000 ráðgjöfum KPMG á Norðurlöndunum sem hafa árlega aðkomu að fjölmörgum verkefnum fyrir viðskiptavini sviðsins á Íslandi. Samstarfið við Norðurlöndin og aðrar skrifstofur KPMG gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar þjónustu í hæsta gæðaflokki á Íslandi.