KPMG og Origo þróa sjálfvirka lausn sem greinir kolefnisspor

Origo og KPMG vinna nú að því að þróa lausn sem greinir kolefnisspor í innkaupum fyrirtækja sem mun heita GreenSenze. Lausnin verður mjög einföld í notkun en mörgum fyrirtækjum reynist erfitt að greina kolefnisspor í innkaupum sínum. Markviss greining á kolefnisspori er forsenda þess að fyrirtæki geti mótað aðgerðir sem draga úr kolefnislosun og stuðla að sjálfbærni í rekstri.

„Markmiðið hjá okkur er að smíða lausn sem einfaldar fyrirtækjum að greina innkaupin sín og meta birgja. Við viljum ekki að kolefnisspor innkaupa komi bara inn í uppgjör einu sinni á ári, heldur geta notendur fylgst með þróuninni yfir árið og beitt sér í átt að sínum markmiðum”  segir Hafþór Ægir Sigurjónsson forstöðumaður sjálfbærni hjá KPMG. 

Áhersla á greiningar á kolefnisspori í rekstri fyrirtækja hefur aukist til muna síðustu ár en þó glíma mörg fyrirtæki við áskoranir í greiningum á þessum þætti í rekstrinum. Kröfur stjórnvalda og hagaðila um upplýsingagjöf á kolefnisspori fyrirtækja eru sífellt að aukast og munu flest fyrirtæki þurfa að standa skil á greiningum á kolefnisspori sínu á næstu árum. 

KPMG og Origo þróa sjálfvirka lausn sem greinir kolefnisspor
Meðfylgjandi mynd var tekin í tilefni af undirritun samstarfssamningsins. Á myndinni eru frá vinstri: Ísleifur Örn Guðmundsson sölustjóri hugbúnaðarlausna Origo, Kristín Hrefna Halldórsdóttir forstöðuman gæða- og innkaupalausna Origo, Björgólfur G Guðbjörnsson forstöðumaður stafrænar þróunar hjá Origo, Hafþór Ægir Sigurjónsson forstöðumaður sjálfbærni hjá KPMG, Gunnar Kr. Sigurðsson forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá KPMG, Sigrún Kristjánsdóttir fjármálastjóri KPMG og Sigrún Eva Valsdóttir vörueigandi GreenSenze.

Origo og KPMG hafa því undirritað samstarfssamning um smíði á nýrri lausn sem kemur til móts við þarfir þeirra viðskiptavina sem vilja standa skil á sínu kolefnisbókhaldi. Lausnin notfærir sér gögn úr rafrænum reikningum og auðgar þau með ýmsum gagnalindum. Upplýsingarnar eru svo birtar með skýrum hætti í mælaborði þar sem hægt er með einföldum hætti að skoða ítarleg gögn um það sem hægt er að bæta í sjálfbærni fyrirtækja

„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við KPMG og finnum fyrir þeim sameiginlega áhuga okkar að búa til vöru sem virkilega hjálpar fyrirtækjum að stíga framfaraskref í sjálfbærnimálum. GreenSenze mun þannig aðstoða fyrirtæki við að átta sig á því hvaða vörur hafa of hátt kolefnisspor fyrir þeirra sjálfbærnimarkmið og ætti að forðast í innkaupum“ segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir forstöðuman gæða- og innkaupalausna Origo.