Héraðsdómur felldi úr gildi ákvörðun ríkisskattstjóra, um að synja manni með takmarkaða skattskyldu, sem naut lífeyrisgreiðslna frá Íslandi, um nýtingu á skattkorti maka.
Heimild til samsköttunar nær til keypts félags á kaupári, að því gefnu að enginn rekstur hafi farið fram í félaginu.
Ársreikningi skilað til ársreikningaskrár eftir sektarákvörðun og því fallist á lækkun sektar úr kr. 250.000 í kr. 100.000.
Reglur um takmarkaða frádráttarbærni vaxtagjalda framlengdar.
Fjallað er um helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu. Nánar verður fjallað um frumvarpið á morgunverðarfundi KPMG þann 6. desember nk.
Vakin er athygli á grein KPMG um ákvæði sem leggur þær skyldur á félagsstjórnir að leita samþykkis hluthafa fyrir samningum að raunverði yfir 1/10 af hlutafé félags, sem gerðir eru við tengda aðila,auk þess að afla sérfræðiskýrslu um verðmæti endurgjaldsins