Til stofns til auðlegðarskatts ber að telja eignarhlut í sameignarfélagi og/eða samlagsfélagi á markaðsvirði eða hlutdeild í skattalegu eigin fé félagsins.
Laun manna með skattalega heimilisfesti utan Íslands vegna starfs sem innt er af hendi meðan dvalið er á Íslandi eru skatt- og staðgreiðsluskyld hér á landi hvort sem starfið er innt af hendi fyrir innlendan eða erlendan launagreiðanda.
Ekki þarf að halda eftir staðgreiðslu skatts af stjórnarlaunum, sem greidd eru vinnuveitanda vegna stjórnarsetu starfsmanna hans, að því gefnu að ljóst sé að starfsmaðurinn er ekki skattskyldur af laununum.
EES ríki sem heimilar innlendum félögum að breyta um félagsform ber að sama skapi að veita félögum annarra ríkja EES möguleika á að breyta félagsformi sínu í þarlent félag, en heimilt er að setja því ákveðnar skorður.
Ólíklegt er að skattur á fjármálagerninga innan Evrópusambandsins, sem tillaga hefur verið lögð fram um, verði að veruleika.
Sett hefur verið ný reglugerð um slysatryggingar við heimilisstörf, sem felur í sér aukna tryggingavernd einstaklinga við viðhaldsstörf og viðgerðir í og við heimili og sumarbústað.