Föstudagur 25. nóvember 2011
IFRS 3 - Sameiningar fyrirtækja
Á námskeiðinu verður farið yfir gildissvið staðalsins IFRS 3 og yfir þær reglur sem gilda um skilgreiningu á sameiningu fyrirtækja, ákvörðun yfirtökuaðila og yfirtökudags. Einnig verður fjallað um mat og færslu endurgjalds, aðgreinanlegra eigna, skulda, minnihluta og viðskiptavildar, notkun bráðabirgðafjárhæða, færsla sameininga í skrefum og upplýsingagjöf í skýringum.
Nýr staðall: IFRS 13 – Mat á gangvirði (e. Fair Value Measurement)
Á námskeiðinu verður farið yfir reglur nýja staðalsins IFRS 13 sem tekur gildi frá og með 1. janúar 2013. Staðallinn felur í sér heildstæðan ramma utan um þær reglur sem ber að fara eftir við mat á gangvirði og um tengda upplýsingagjöf í skýringum.
Upp
Þriðjudagur 29. nóvember 2011
Nýir staðlar: IFRS 10, 11, 12 og drög að staðli um fjárfestingarfélög
Farið verður yfir reglur eftirfarandi reikningsskilastaðla:
- IFRS 10 Samstæðureikningar (e. Consolidated Financial Statements)
- IFRS 11 Fyrirkomulag um samrekstur (e. Joint Arrangements)
- IFRS 12 Upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum félögum (e. Disclosure of Interests in Other Entities)
- IAS 27 Aðgreindir reikningar (e. Separate Financial Statements)
- IAS 28 Fjárfestingar í hlutdeildarfélögum og samrekstrarfélögum (e. Investments in Associates and Joint Ventures)
Þessir nýju staðlar innihalda reglur sem munu gilda um færslu fjárfestinga í dótturfélögum, hlutdeildarfélögum, samrekstrarfélögum og samrekstri í ársreikningum og samstæðureikningum og um tengda upplýsingagjöf í skýringum. Staðallinn IFRS 10 mun gilda um gerð samstæðureikninga og inniheldur m.a. reglur sem mun þurfa að fara eftir við mat á því hvenær félag er talið vera með yfirráð yfir öðru félagi. Um er að ræða reglur sem kveða á um tiltekna aðferðafræði sem er mun ítarlegar skilgreind en hingað til. Sem dæmi má nefna reglur sem kveða á um mat á því hvort fjárfestir hafi vald yfir starfsemi sem skiptir máli, þar með talið þegar fjárfestirinn hefur ekki meirihluta atkvæðisréttar. Þá mun staðallinn IFRS 12 gera mun ítarlegri kröfur um upplýsingagjöf í skýringum, til dæmis vegna minnihluta í dótturfélögum og vegna aðkomu að sérsniðum félögum (e. structured entities).
Nýju staðlarnir munu gilda fyrir reikningsár sem hefjast 1. janúar 2013 eða síðar og almenna reglan er sú að þá ber að innleiða afturvirkt. Þetta þýðir að samanburðarupplýsingar vegna ársins 2012 verða einnig að vera að samræmi við reglur nýju staðlanna.
Í lok námskeiðsins verður farið yfir drög til umsagnar (e. exposure draft) að nýjum staðli um fjárfestingarfélög (e. investment entities) þar sem lagt er til að fjárfestingarfélag (eins og það er skilgreint í drögunum) færi dótturfélög sín á gangvirði gegnum rekstrarreikning fremur en að sameina þau í samstæðureikningi sínum.
Upp
Fimmtudagur 1. desember 2011
IFRS 3 – Endurskipulagning samstæðu
Mikil gerjun á sér nú stað í rekstri fyrirtækja, m.a. með endurskipulagningu samstæða og sameiningum félaga innan sömu samstæðu. Farið verður yfir nokkur dæmi um hvaða áhrif endurskipulagning samstæðu getur haft á reikningsskil hennar og reikningsskil móðurfélagsins. Einnig verður fjallað um dæmi um endurskipulagningu vegna sölu félaga út úr samstæðum.
IFRS 3 / IAS 39 – Kaup á hlutum í öðrum félögum – tiltekin álitamál
Samningar um sameiningar fyrirtækja uppfylla yfirleitt skilyrði IAS 39 til að vera skilgreindir sem afleiður fram til yfirtökudags. Á námskeiðinu verður farið yfir reglur og dæmi um það hvenær slíkir samningar eru undanskildir gildissviði IAS 39 og hvenær ekki. Einnig verður farið yfir reglur og dæmi um áhrif mögulegs atkvæðisréttar á ákvörðun um yfirráð yfir öðru félagi. Í lok námskeiðsins verður farið yfir reglur og dæmi um færslu samninga um kaup og sölu minnihluta í dótturfélögum.
Upp
Mánudagur 5. desember 2011
IAS 1 – Framsetning reikningsskila
Fjallað verður um ýmis atriði varðandi flokkun og framsetningu í rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu, efnahagsreikningi og eiginfjáryfirliti.
IFRS 8 – Starfsþættir
Á námskeiðinu verður farið yfir upplýsingakröfur staðalsins og ársreikningalaga um starfsþætti og þau skref sem nauðsynlegt er að fara áður en hægt er að setja skýringu um starfsþáttayfirlit fram. Þá verður farið yfir helstu athugasemdir sem eftirlitsaðilar á alþjóðavísu hafa gert við framsetningu starfsþáttaupplýsinga auk þess sem fjallað verður um áhrif skipulagsbreytinga innan félaga á skilgreiningu starfsþátta.
IAS 24 – Upplýsingagjöf um tengda aðila
Á námskeiðinu verður farið yfir skilgreiningu á tengdum aðilum samkvæmt IAS 24, hvaða upplýsinga er krafist og undanþágu frá upplýsingagjöf vegna félaga sem tengd eru ríkinu.
Upp
Miðvikudagur 7. desember 2011
IAS 12 – Tekjuskattur
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði IAS 12 varðandi færslu og framsetningu tekjuskatts í ársreikningum félaga.
IFRS 5 – Fastafjármunir sem haldið er til sölu og aflögð starfsemi
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist grunnþekkingu á ákvæðum staðalsins. Farið verður yfir gildissvið staðalsins, hvenær eignir teljast vera haldnar til sölu, hvenær starfsemi telst vera aflögð og kröfur um mat og framsetningu því tengdu, auk þess sem fjallað verður um önnur atriði er tengjast staðlinum.
Upp
Föstudagur 9. desember 2011
IAS 39 – Fjármálagerningar: mat og færsla
Á námskeiðinu verður fjallað um reglur IAS 39 sem gilda um mat og færslu fjáreigna og fjárskulda. Farið verður yfir gildissvið staðalsins, flokka fjáreigna og fjárskulda, matsreglur og reglur um virðisrýrnun. Auk þess verður farið yfir dæmi um færslu vaxtatekna af virðisrýrðum fjáreignum og útreikning virðisrýrnunar, ásamt umfjöllun um mat á gangvirði.
Upp