Síðastliðið sumar framkvæmdi KPMG könnun meðal íslenskra stjórnarmanna til að kanna bakgrunn þeirra og störf stjórna. KPMG hefur nú birt skýrslu um niðurstöður könnunarinnar og er hægt að nálgast hana hér (PDF 935 KB).
Alls fengu 814 einstaklingar beiðni um þátttöku og tóku 280 stjórnarmenn þátt í könnuninni. Um er að ræða stjórnarmenn hjá fjármálafyrirtækjum, vátryggingafélögum, lífeyrissjóðum og framleiðslu- og þjónustufyrirtækjum sem eru á lista Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtækin á Íslandi á árinu 2010.
KPMG og Viðskiptaráð Íslands standa fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 8. nóvember kl. 8:30 – 10 í húsakynnum KPMG í Borgartúni 27 þar sem helstu niðurstöður könnunarinnar verða kynntar.
Í kjölfarið fara fram pallborðsumræður þar sem þátttakendur eru:
Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
Berglind Ósk Guðmundsdóttir KPMG
Liv Bergþórsdóttir framkvæmdastjóri NOVA
Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík
Þátttaka er án endurgjalds.