Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 245 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki.
Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi. Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi.
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
- Að hafa skilað ársreikningum til RSK 2008 til 2010
- Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
- Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
- Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
- Eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2008 - 2010
- Að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2008 til 2010
- Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá
- Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo