Af rúmlega 32 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá sýna 358 fyrirtæki þann styrk í mælingum Creditinfo að verðskulda viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki“.
Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi. Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi.
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
- Að hafa skilað ársreikningum til RSK 2009 til 2011
- Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
- Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
- Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
- Eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2009 - 2011
- Að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2009 til 2011
- Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá
- Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo