Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vinna mikið með Excel og langar geta nýtt sér möguleika þess enn betur. Námsskeiðið byggir í grunninn á námsskeiði sem er haldið fyrir starfsmenn KPMG og hefur mælst mjög vel fyrir.
Á námskeiðinu verður farið í þær reikniaðgerðir og formúlur sem hvað mest eru notaðar í almennri Excel-vinnslu. Hver reikniaðgerð er útskýrð og farið yfir hvernig hægt er að hámarka notkunargildi hverrar formúlu.
Flýtilyklar verða skoðaðir, en hægt er að spara sér töluverða vinnu með því að tileinka sér notkun þeirra. Flýtilyklar eru til á allar skipanir í Excel, allt frá því að gera texta feitletraða eða undirstrikaða yfir í að framkvæma hinu vinsælu „paste values“ aðgerð. ormúlur sem farið verður yfir í námskeiðinu eru m.a. eftirfarandi:
- Búa til formúlur með föstum og afstæðum tilvísunum.
- Sum, sumif, sumifs, average, averageif, averageifs (ath. sumifs og averageifs er einungis í excel 2007).
- Mid, left, right, len.
- Formúlurnar taka texta í sundur og geta sett hann saman aftur.
- Formúlurnar eru nýttar til að auka sjálfvirka vinnslu texta og talna.
- Leitarskipanir: lookup, vlookup, hlooup.
- Formun á tölum (þ.e. 1000000 eða 1.000.000 eða 1 millj. kr.).
- Hönnun á vinnuumhverfi þínu í Excel, þ.e. „Quick access Toolbar“, sérhannaðar flýtileiðir og aðrir flýtilyklar.
- Í upphafi námskeiðsins fá þátttakendur Excel skjal sem fyllt er inní á námskeiðinu. Við lok námskeiðsins fá nemendur excel skjalið útfyllt að fullu af kennara sem inniheldur þær formúlur sem unnið var með á námskeiðinu ásamt þeim viðbótar spurningum og svörum sem farið var yfir í tímanum.
Námskeiðið er 3 klst. en í lok námskeiðsins geta nemendur einnig spurt kennara út í eigin verkefni sem þeir kljást við hverju sinni.
Með því að tileinka sér einfaldar vinnureglur er hægt að auka afköst sín í Excel til muna og þar með skila meiri vinnu og betra verki hraðar en áður.
Þetta námskeið nýtist sérstaklega þeim sem að einhverju leyti vinna með Excel við úrlausn sinna viðfangsefna en hafa þörf fyrir að bæta þekkingu sína í að nýta innbyggðar reikniaðgerðir og aðra þá möguleika sem forritið býður upp á.