Launavinnslur 

Á uppgjörs- og bókhaldssviði er starfsfólk sem annast launaútreikninga fyrir rekstraraðila og félög og  senda launamönnum launaseðla á pappír eða á rafrænu formi. Jafnframt eru útbúnar skilagreinar til lífeyrissjóða, stéttarfélaga og skattyfirvalda.

Í árslok eru útbúnir launamiðar og þeir sendir skattyfirvöldum og launþegum. Ef viðskiptavinurinn færir sjálfur fjárhagsbókhald sitt sendum við honum dagbókarskrá yfir launavinnslur annað hvort til innsláttar eða í rafrænu formi til innlestrar.


Við launavinnslur notum við aðallega H3 Laun launavinnslukerfi en einnig er í boði að launin séu færð í dk launakerfi. Við fylgjumst með öllum þeim breytingum sem eiga sér stað hjá hinu opinbera sem og lífeyrissjóðum og stéttarfélögum og gerum uppfærslur í takt við þær breytingar.


Aukning hefur orðið á að bæði stórir og smáir rekstraraðilar fái utanaðkomandi aðila til að sjá um launaútreikninga hvort sem er að hluta til eða öllu leyti. Ástæðan er meðal annars að launaútreikningur er oft flókinn og ekki síður sú launaleynd sem oft er krafist að viðhöfð sé í fyrirtækjum. 
 

Hagnýtir tenglar:

Tengiliðir

Olgeir Jón Þórisson

Verkefnastjóri

Sími: 545-6062

othorisson@kpmg.is

 

Halldóra Jakobsdóttir

Sérfræðingur

Sími: 545-6062

hjakobsdottir@kpmg.is

Fyrirspurnir

Hafðu samband ef þú óskar eftir frekari upplýsingum um launavinnslur.

Um uppgjörs- og bókhaldssvið

Á uppgjörs- og bókhaldssviði KPMG starfar vel þjálfað og reynslumikið fólk. Meðal annars löggiltir endurskoðendur, viðurkenndir bókarar ásamt starfsfólki sem hefur mikla reynslu af uppgjörum og hefur yfirsýn yfir flestar tegundir atvinnurekstrar í landinu. Mikil áhersla er lögð á símenntun starfsfólks og vel er fylgst með öllum laga- og reglugerðabreytingum á sviði bókhalds, reikningshalds og skattamála.