Gríðarlega mikilvægt er að halda vel utan um félagsmenn og hluthafa í félögum og má segja að hlutaskráin sé hjarta hvers félags, sér í lagi þar sem engin opinber skrá heldur utan um eignarhald félaga. Ákvæði hlutafélagalöggjafar leggja meðal annars þær skyldur á herðar stjórnarmönnum að halda skrá um hlutafjáreign, dagsetningu allra viðskipta og aðrar breytingar á hlutafé og því mikilvægt að vel sé haldið utan um skrána.
Sérfræðingar skatta- og lögfræðisviðs KPMG ehf. bjóða fram aðstoð við að koma slíku utanumhaldi í gott horf eða jafnvel að halda slíka skrá.