Reglur félagaréttar, lögbundnar og ólögbundnar gera ráð fyrir því að aðal- og félagsfundir séu æðsta vald hvers félags og stjórn vinni í umboði sem þeim er veitt og hrindi í framkvæmd ákvörðunum félagsfunda. Því er afar mikilvægt fyrir stjórnir að slíkir fundir gangi vel fyrir sig og fundarsköp og ákvæði laga og samþykkta séu virt. Sérfræðingar skatta- og lögfræðisviðs KPMG ehf. taka að sér undirbúning, stjórnun og hverskonar utanumhald funda, meðal annars með því að aðstoða við gerð fundargagna, fundarboða og síðast en ekki síst með fundarstjórn.