Áhersla á samkeppnismál fer sívaxandi í samfélagi dagsins í dag. Fyrirtæki þurfa bæði að gæta hagsmuna gagnvart keppninautum sínum en jafnframt að farið sé að samkeppnislögum. Sérstaklega þarf að huga að samkeppnisreglum við kaup á fyrirtæki eða rekstri, við samruna, skiptingu eða þegar um aðra endurskipulagningu er að ræða.
KPMG getur aðstoðað þitt fyrirtæki við að gæta hagsmuna í tengslum við samkeppnismál. Sem dæmi um þá þjónustu sem KPMG veitir má nefna:
- Tilkynningar, svarbréf og önnur samskipti við samkeppnisyfirvöld.
- Gerð samstarfssamninga milli fyrirtækja.
- Aðstoð við málsmeðferð fyrir samkeppnisyfirvöldum.