Stimpilgjald 

Ef spurningar vakna í sambandi við stimpilgjald getur þú leitað aðstoðar hjá sérfræðingum KPMG.

Sýslumaður hefur það hlutverk að leggja á stimpilgjald á stimpilgjaldskyld skjöl, sbr. lög nr. 36/1978, um stimpilgjald. Greiða þarf stimpilgjald þeirra við útgáfu auk þess sem framlenging eða framsal á skjalinu getur leitt til nýrrar stimpilgjaldsskyldu eftir því hvers konar skjal um ræðir.

 

Þau skjöl sem eru stimpilgjaldsskyld, eru einkum:

 

  • Skuldabréf, tryggð með veði eða ábyrgð.
  • Afsöl fyrir fasteignum  hér á landi og skipum sem eru skrásett.
  • Víxlar og samþykktar ávísanir.
  • Hlutabréf og félagasamningar í félögum með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna.
  • Vátryggingaskjöl sem tengjast fasteignum eða verðmætum hér á landi sem og trygging verðmæta við flutning.
  • Kaupmálar.
  • Endurrit úr gerðarbókum vegna aðfarargerðar, kyrrsetningar og löggeymslu þegar þeim er þinglýst.
  • Leigusamningar um jarðir og lóðir, heimildaskjöl um veiðiréttindi og skjöl sem leggja ítök, skyldur og kvaðir á annarra eign.

 

Sé ekki greitt stimpilgjald af stimpilgjaldskyldu skjali innan tiltekins frests ber að beita álagi annars vegar og sektum hins vegar. Álagið skal nema tvöföldu vangoldnu stimpilgjaldi ef um víxil er að ræða en annars 10% fyrir hvert byrjað 7 daga tímabil umfram tilskilinn frest, allt að hálfu vangoldnu stimpilgjaldi. Í lögunum er aðeins almennt sektarákvæði sem þýðir að um fjárhæð sektar fer eftir ákvæðum almennra hegningarlaga um ákvörðun sektar, þ.e. að hliðsjón sé höfð af tekjum og eignum sakbornings, afkomu, framfærsluskyldu og öðrum atriðum er orka á greiðslugetu hans og þeim fjárhagslega ávinningi eða sparnaði sem leiddi af brotinu.

 

Ef þú ert í vafa um stimpilgjaldsskyldu eða skil á fjármununum í ríkissjóð geta starfsmenn KPMG aðstoðað þig.

Tengiliðir

Feature image

Sigurjón Högnason

Lögfræðingur / Senior manager

Sími: 545-6068

shognason@kpmg.is

Feature image
Steingrímur Sigfússon

Löggiltur endurskoðandi / Senior manager

Sími: 545-6242

ssigfusson@kpmg.is