Verðlagning á vöru og þjónustu milli tengdra aðila er nefnd milliverðlagning.
Stór hluti alþjóðlegra viðskipta fara fram milli tengdra aðila, t.d. móður- og dótturfélaga eða höfuðstöðva og útibús.
Í viðskiptum milli tengdra aðila er mikilvægt að verð séu ákveðin í arms lengd þannig að verð í viðskiptum þeirra sé ekki ósvipað því verði sem hefði myndast á markaði milli ótengdra aðila. Hinum tengdu aðilum er þannig ekki í sjálfsvald sett hvernig þeir ákveða verð í viðskiptum sín á milli.
Ekki hafa verið settar sértækar milliverðsreglur á Íslandi. Almenna milliverðsreglu er þó að finna í 2. mgr. 57. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 9. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Flest ríki OECD hafa hins vegar lögleitt umfangsmiklar milliverðsreglur.
Fyrirtæki hafa það að markmiði að hámarka hagnað sinn. Þau leitast því við að greiða ekki hærri skatt en þau þurfa. Þegar um alþjóðleg fyrirtæki er að ræða getur verið mikilvægt að huga að því hvar er hagstæðast að greiða skatta. Hins vegar þarf að gæta þess að um eðlileg viðskipti sé að ræða og í samræmi við milliverðsreglur.
KPMG hefur mikla reynslu af því að veita ráðleggingar um milliverðlagningu. Meðal þeirrar þjónustu sem við höfum verið að bjóða upp á má nefna:
- Ráðgjöf varðandi skipulagningu og þróun á viðskipta- og efnahagslega hagkvæmri milliverðlagsstefnu.
- Ráðgjöf varðandi hvort verðlagning á vöru og þjónustu sé í samræmi við milliverðsreglur.
- Heildarumsjón með skjalagerð, s.s. lána, dreifingar- og sölusamninga og samninga um rannsóknar- og þróunarvinnu milli tengdra aðila.
- Aðstoð við reglu- og skjalaskyldu.
- Ráðgjöf við úrlausn ágreinings.