Sérfræðingar KPMG veita fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum aðstoð við að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til reksturs upplýsingakerfa
Til að tryggja órofinn rekstur upplýsingakerfa er nauðsynlegt að til staðar sé öflugt stjórnkerfi sem heldur utan um og samþættir alla hluta rekstrarins. KPMG veitir aðstoð við hönnun og innleiðingu á slíkum stjórnkerfum í formi viðbúnaðaráætlana sem taka mið að rekstrarumhverfi og þörfum hvers viðskiptavinar. KPMG aðstoðar ennfremur við innleiðingu á stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt þekktum stöðlum eins og ISO 27001:2005.