Rekstrarhagræðing í upplýsingatækni 

Rekstrarhagræðing í upplýsingatækni er ein af fjölmörgum þjónustuleiðum sem KPMG býður fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem vilja hámarka arðsemi þeirra fjármuna sem varið er í rekstur upplýsingatæknimála.

Framkvæmd er greining á núverandi rekstrarumhverfi, helstu upplýsingakerfum, daglegum rekstri og aðkeyptri þjónustu frá þriðja aðila. Niðurstöður greiningar gefa stjórnendum þá yfirsýn sem þeir þurfa til að taka upplýstar ákvarðanir til að ná fram aukinni hagræðingu við rekstur upplýsingatæknikerfa. Með margreyndum aðferðum aðstoða KPMG stjórnendur við að ná fram hámarks arðsemi fyrirliggjandi fjárfestinga um leið og rekstrarkostnaður er lágmarkaður. Með aðkomu allra rekstrareininga næst marktækur árangur sem byggir á samvinnu og sameiginlegum markmiðum.

 

Sem óháður aðili aðstoðar KPMG viðskiptavini við að hámarka arðsemi þeirra fjármuna sem varið er í upplýsingatækni og taka upplýstar ákvarðarnir byggðar á óháðu mati. 

 

     

Ítarlegri upplýsingar veitir

Davíð Halldórsson

Verkefnastjóri

Sími: 545 6134

Netfang: dhalldorsson@kpmg.is

 

Ingi Tómasson

Sérfræðingur

Sími: 545 6032

Netfang: itomasson@kpmg.is