Eftirfarandi þættir eru hluti af ferli endurskipulagningar:
- Stöðugreining: Úttekt á rekstri og efnahagi.
- Tillögur að breytingaferli: Stefna mörkuð, skipulagsbreytingar og fleiri þættir skoðaðir.
- Framkvæmda- og aðgerðaáætlun.
- Fjárhagsskipan: Áhersla er lögð á að bæta fjárhagsskipan til lengri tíma.
- Ferlagreining: Farið yfir alla ferla og lögð áhersla á að einfalda þá eins og kostur er.
- Áætlanagerð: Farið yfir alla framlegðar- og kostnaðarútreikninga. Gerð rekstraráætlun þar sem fram kemur yfirlit yfir rekstur, efnahag og sjóðstreymi.
- Sjóðs- og skuldastýring: Með forsendum rekstraráætlunar er lagður grunnur að allri sjóðs- og skuldastýringu. Markmiðið er að lágmarka vaxtakostnað og tryggja sem öruggasta stöðu fjármagns á álagstoppum.
Það er þekkt að ef starfsfólk er ekki ánægt, eru líkur á að viðskiptavinur sé það ekki heldur sem getur leitt af sér minni veltu eða lægra þjónustustigs og þar með verri nýtingu fjármagns. Það nægir því ekki að fara í endurskipulagningarferli ef starfsmenn eru ekki tilbúnir til þess. KPMG leggur mikla áherslu á að virkja starfsfólk á jákvæðan hátt og þar með tryggja að breytingaferlið virki sem skyldi.
Á fyrirtækjasviði KPMG eru sérfræðingar sem hafa sérhæft sig í að stýra breytinga ferli til að auka hæfni rekstrar- og þjónustueininga, en hluti af okkar þjónustu felst einmitt í því að koma að fjárhags- og rekstrarlegri endurskipulagningu.