Hvatinn til lengri tíma er að mestu leyti fólginn í sameinaðri þekkingu, tækni, viðskiptavild, þjónustu, vörum og mörkuðum. Í flestum tilvikum leiðir aukin stærð fyrirtækis til forskots í samkeppni, gefur tækifæri á ódýrara lánsfjármagni og þjónustu á breiðara sviði. Að mörgu er að huga í slíku ferli og til að ná sem bestum árangri skiptir miklu máli að undirbúningur og framkvæmd samruna eða yfirtöku sé vandaður og unnin af fagmennsku og þekkingu. Fyrirtæki í kaup- og söluferli þurfa að marka sér stefnu og setja sér haldbær markmið, velja réttan yfirtöku- og/eða samrunaaðila og fylgja því eftir með vel útfærðri framkvæmdaáætlun. Í öllum slíkum skrefum þarf trausta aðstoð og ráðgjöf. KPMG hefur reynslu af fjölþættum verkefnum á þessu sviði og hefur á undanförnum árum veitt aðstoð við kaup, sölu og yfirtökur fyrirtækja og fasteigna.
- Greining tækifæra og/eða ráðgjöf við val á vænlegum kauptækifærum.
- Gagnaöflun og verðmat fyrirtækis.
- Kauptilboðsgerð.
- Kynningargögn og kynning fyrir fjármálastofnunum og fjárfestum.
- Samningsgerð og skjalafrágangur.
- Aðstoð við að ná hagstæðri fjármögnun.
- Umjón með og gerð áreiðanleikakannana.
- Gagnaöflun um fyrirtækið og upplýsingar frá stjórnendum.
- Verðmat auk greiningar á viðkomandi markaði.
- Uppsetning á söluferli.
- Kynningargögn útbúin fyrir fjárfesta.
- Finna fjárfesta og leiða að samningaborðinu.
- Leiða samningaferli og meta tilboðin út frá markmiðum seljenda.
- Aðstoð við skjalafrágang.
- Umjón með og gerð áreiðanleikakannana.
- Aðstoð við að leiða félög saman.
- Markmið með samruna útlistuð ásamt kostum og göllum.
- Mat á skiptihlutföllum.
- Aðgerðaráætlun.
- Kynning fyrir starfsmenn og aðra hagsmunaaðila.
- Gerð viðskiptalíkans og kynningargagna.
- Undirbúningur kynningar og söluferlis.
- Stýring kynningar- og söluferlis auk viðræðna við áhugasama fjárfesta.
- Eftirlit með áreiðanleikakönnun og uppsetning endanlegra samninga.