Megintilgangur KPMG á Íslandi er að veita fyrirtækjum og einstaklingum á Íslandi sérhæfða þjónustu á sviði endurskoðunar og ráðgjafar sem grundvallast á áreiðanleika, ítrustu fagmennsku og öryggi. Vel þjálfað starfsfólk er opið fyrir innlendum og erlendum straumum nýrrar þekkingar og byggir allt sitt starf á að viðskiptavinurinn sé í fyrirrúmi.
Á heimsvísu starfa meira en 145 þúsund manns hjá KPMG í 153 löndum. Samstarf þessa stóra hóps byggir á reglubundnu gæðaeftirliti og aðgangi að upplýsingum sem tryggir fagþekkingu í heimsklassa og sömu þjónustu í öllum heimshornum.
KPMG ehf. var stofnað 4. september 1975. Samkvæmt samþykktum félagsins er tilgangur þess að annast hvers konar endurskoðunar- og ráðgjafarþjónustu. Hluthafar í félaginu eru 33 og eru allir starfandi í félaginu.
Stjórnskipulag félagsins er tilgreint í samþykktum þess og samkvæmt þeim fara eftirfarandi með stjórn KPMG ehf.:
Hluthafafundir.
Stjórn félagsins.
Framkvæmdastjóri.
Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum og eru þeir allir hluthafar. Stjórnina skipa eftirfarandi:
- Jón S. Helgason, stjórnarformaður
- Anna Þórðardóttir
- Benedikt K. Magnusson
- Margret G. Flóvenz
- Símon Á. Gunnarsson
Framkvæmdastjóri félagsins, Sigurður Jónsson, er hluthafi en er ekki í stjórn félagsins.
KPMG á Íslandi er skipt í þrjú svið. Þau eru:
Endurskoðunarsvið, sviðsstjóri er Auður Þórisdóttir. Innan endurskoðunarsviðs starfar uppgjörs- og bókhaldssvið sem Eyvindur Albertsson veitir forstöðu.
Fyrirtækjasvið, sviðsstjóri er H. Ágúst Jóhannesson.
Skatta- og lögfræðisvið, sviðsstjóri er Alexander Eðvardsson.