Þetta er KPMG 

KPMG International er net sérfræðifyrirtækja er hafa það að markmiði að breyta skilningi á upplýsingum, atvinnugreinum og þróun á sviði viðskipta í verðmæti. Á heimsvísu hefur félagið á að skipa um 145 þúsund starfsmönnum. Aðildarfélög KPMG veita endurskoðunarþjónustu, skattaþjónustu , fjármála- og rekstrarráðgjöf í 153 löndum. 
 
Á Íslandi eru starfsmenn KPMG um 240 á ellefu starfsstöðvum.

Um KPMG

Á heimsvísu starfa meira en 145 þúsund manns hjá KPMG International í yfir 153 löndum. Samstarf þessa stóra hóps byggir á reglubundnu gæðaeftirliti og aðgangi að upplýsingum sem tryggir fagþekkingu í heimsklassa og sömu þjónustu í öllum heimshornum.

Fyrirtækið

Megintilgangur KPMG á Íslandi er að veita fyrirtækjum og einstaklingum á Íslandi sérhæfða þjónustu á sviði endurskoðunar og ráðgjafar sem grundvallast á áreiðanleika, ítrustu fagmennsku og öryggi. Vel þjálfað starfsfólk er opið fyrir innlendum og erlendum straumum nýrrar þekkingar og byggir allt sitt starf á að viðskiptavinurinn sé í fyrirrúmi.

Gagnsæisskýrsla KPMG 2011

KPMG á Íslandi

Samkvæmt lögum nr. 79 sem samþykkt voru á Alþingi 12. júní 2008, kemur fram að endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki sem hafa með höndum endurskoðun eininga tengdra almannahagsmunum skulu árlega birta á vefsetri sínu skýrslu um gagnsæi. Hér má nálgast þessa skýrslu KPMG.