Meginmarkmið með könnuninni er að kanna starfshætti og starfsumhverfi stjórna, samskipti, reynslu og menntun stjórnarmanna og viðhorf til samsetningar stjórna. Ennfremur er markmiðið að kortleggja viðhorf til laga um 40% lágmarkshlutfall hvors kyns í stjórnum sem taka gildi 1. september næstkomandi.
Alls fengu 920 einstaklingar þátttökubeiðni og tóku 396 stjórnarmenn fullan þátt í könnuninni. Svarhlutfallið var því 43%. Um er að ræða stjórnarmenn hjá framleiðslu- og þjónustufyrirtækjum sem eru á lista Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtækin á Íslandi árið 2011, hjá fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum. Karlar voru fleiri en konur eða 71% og konur 29%.
KPMG og Félagsvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 9. janúar kl. 9 – 10 í húsakynnum KPMG í Borgartúni 27 þar sem helstu niðurstöður könnunarinnar verða kynntar.
Dagskrá:
Ávarp
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Niðurstöður Könnunar stjórnarmanna
Berglind Ósk Guðmundsdóttir Verkefnastjóri hjá KPMG
Pallborðsumræður
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði, Háskóla Íslands
Haraldur I. Birgisson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
Sigurður Atli Jónsson forstjóri MP banka
Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Stika og formaður Samtaka iðnaðarins
Jón S. Helgason framkvæmdastjóri KPMG er fundarstjóri og mun stýra pallborðsumræðu
Þátttaka er án endurgjalds.