Á fundinum, sem tæplega 60 mann sóttu, var farið yfir helstu niðurstöður úttektar sem KPMG vann fyrir 7 sveitarfélög um áhrif þess að flytja miðstöð innanlandsflugs frá Reykjavík til Keflavíkur. Auk fulltrúa KPMG töluðu á fundinum Skarphéðinn Smári Þórhallsson, framkvæmdastjóri starfsstöðvar Mannvits á Egilsstöðum og Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Fóru þeir yfir hverjar þeir teldu að yrðu afleiðingarnar af slíkum flutningi á atvinnulíf og stjórnsýslu á svæðinu. Fram kom á fundinum mikil áhersla á nauðsyn þess að ná sátt um skipan innanlandsflugs til framtíðar og vonandi væri þessi úttekt gagnlegt innlegg í þá vinnu.

