Það er mismunandi hvað félög gera til að bæta stjórnarhætti sína og hvenær þau telja sig vera að fylgja góðum stjórnarháttum. Sum fyrirtæki telja það vera fullnægjandi að stjórn setji sér starfsreglur á meðan önnur fyrirtæki ganga lengra, t.d. með því að birta upplýsingar um stjórnarhætti sína á vefsíðu og/eða í ársreikningi.
Þjónusta KPMG er varðar stjórnarhætti:
- Úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
- Aðstoð við að útbúa og/eða yfirfara starfsreglur stjórnar
- Úttekt á starfsreglum stjórnar
- Aðstoð við afmökun starfsheimilda, t.d. skilgreina hvaða ákvarðanir teljast vera óvenjulegar eða mikilsháttar
- Aðstoð við að útbúa starfsáætlun stjórnar
- Aðstoð við framsetningu fundargerða ásamt þjálfun fyrir fundarritara
- Aðstoð við árangursmat stjórnar
- Námskeið fyrir stjórnarmenn og starfsfólk