KPMG hefur á undanförnum árum tekist á við mörg flókin álitamál sem tengjast verðmati í tengslum við kaup og sölu félaga eða eigna þeirra. Þá höfum við veitt fjöldamörgum fyrirtækjum ráðgjöf varðandi matsvinnu í tengslum við reikningsskilastaðla (IFRS/IS GAAP) sem hafa á undanförnum árum flækt mjög uppgjörsvinnu fyrirtækja.
Á fyrirtækjasviði KPMG starfa érfræðingar sem eru með haldgóða og fjölbreytta menntun og bakgrunn frá ýmsum sviðum atvinnulífsins. Þar að auki nýtur verðmatsteymi KPMG stuðnings frá verðmatssérfræðingum um allan heim með mikla þekkingu á sínu sviði og sérhæfingu í atvinnugreinum.
Verðmatssérfræðingar KPMG hafa fengið vottun hjá KPMG International.
Verðmatsþjónusta KPMG innifelur m.a.:
- Almennt verðmat á fyrirtækjum
- Verðmat á fasteignum
- Sérhæft verðmat á flóknum eignasöfnum
- Verðmat í samræmi við uppgjör fyrirtækja
- Virðisrýrnunarpróf – IAS 36
- Úthlutun kaupverðs (e. Purchase Price Allocation)
- Mat á armslengdarviðskiptum í skattalegum tilgangi
- Uppsetning verðmatslíkana